Og þá var kátt í höllinni ... !
06.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag, föstudaginn 6. febrúar fengu nemendur 8. bekkjar í hendur ipad spjaldtölvurnar sem þau hafa beðið eftir. Búið er að setja þær allar upp fyrir nemendur og hlaða inn einu appi sem þau þurfa að hafa. Öppunum á eflaust eftir að fjölga á næstu dögum. Nemendum er að sjálfsögðu sýnt mikið traust með því að lána þeim þessi tæki og við erum sannfærð um að þau muni standa undir því trausti. Þau fengu að fara með spjaldtölvurnar heim í dag og væntanlega verður það þannig áfram, að þau hafi tækin til frjálsra afnota heima og í frímínútum en í kennslustundum gilda strangar reglur um notkun þeirra. Öpp eins og t.d. snapchat, eiga ekki að vera í þessum tækjum. Krakkarnir þurfa einnig að passa að koma með þau fullhlaðin í skólann aftur.
Vonandi verða þessi tæki til þess að auðvelda nemendum námið og gera kennsluna fjölbreyttari og skemmtilegri.








