Nýtt skólaár

23.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá er skólastarf hafið að nýju og nemendur mættir í skólann eftir sólríkt og vonandi skemmtilegt sumar. Að venju hefst skólaárið með gönguferð allra bekkja og er ætlunin að 10. bekkur fari að Látrum í Aðalvík og gangi að Hesteyri. Fyrirhugað var að fara í næstu viku, en vegna anna hjá Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar verðum við að fresta ferðinni um viku þeas til 3.-7. sept.


Ýmsar áherslubreytingar verða á skólastarfinu sem við munum kynna á okkar árlega haustfundi.