Nýtt ár

09.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er fyrsta skólavika nýja ársins liðin og lífið að komast aftur í rútínu og hversdagurinn tekinn við. Það er gaman að sjá hve miklar framfarir hafa orðið hjá krökkunum síðan í haust, allir duglegir að læra og mikill metnaður í gangi að gera sitt besta. Fyrst í haust tók það okkur upp undir 40 mínútur að lita  tvo stafi, klippa þá út  og líma inn í sögubókina en í dag eru þau yfirleitt innan við 10 mínútur að þessu.