Nýjar sóttvarnarreglur
31.03.2021 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er nýja sóttvarnarreglugerðin frá heilbrigðisráðherra komin út. Hún gildir til og með 15. apríl. Hún lítur betur út en við þorðum að vona og verða engar breytingar á kennslu:
- Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
- Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.
- Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, sem og í mötuneytum og skólaakstri, er heimilit að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að starfsfólk noti andlitsgrímu.
- Allir sem koma í skólann eiga að vera með andlitsgrímu.
- Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.
Kennsla hefst því samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. apríl og vonum við að ekki þurfi að gera frekari ráðstafanir.
Með ósk um gleðilega páska
Olga og Helga.








