Nýir vinaliðar
09.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær kusu krakkarnir í bekknum nýja vinaliða fyrir vorönnina og var auðvitað um lýðræðislega kosningu að ræða. Þeir sem hlutu flest stig voru (í stafrófsröð):
Adrian, Arnór Óli, Gautur Óli, Hrefna Dís, Lilja Borg og Viktoría Rós.
Við óskum þessum krökkum til hamingju með tilnefninguna, en hún er mikil viðurkenning fyrir þá, þar sem bekkjarfélagar þeirra telja þá vera vingjarnlega og fulla virðingar gagnvart öllum öðrum nemendum.








