Ný lög um persónuvernd

18.06.2018 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Miðað við ný lög um persónuvernd telst miðillinn Facebook ekki geta tryggt öryggi persónugreinanlegra upplýsinga eins og krafist er. Það þýði r að við verðum að breyta notkun okkar á miðlinum. Okkur verður ekki heimilt að setja myndir af nemendum inn á Facebook og verðum að eyða þeim myndum sem við höfum nú þegar sett inn. Lögin taka gildi þann 15.júlí og þá verðum við að vera með þetta í lagi. Við höfum beðið kennara að bregðast við og taka út þær myndir sem þeir hafa sett inn og hið sama á við um þær myndir sem hafa birst á skólastjóraröltinu. Við viljum gefa foreldrum tækifæri til að ná í myndir af síðunni okkar ef þeir vilja og munum því ekki byrja að fjarlægja myndirnar fyrr en 25.júní.