Nú líður að jólum
28.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Núna fer að líða að jólum og undirbúningur fyrir þau er hafinn hjá okkur í fyrsta bekk. Við ætlum að hafa aðventustundir á föstudagsmorgnum, þar sem við kveikjum á kerti, syngjum og segjum sögu.
Það er alltaf nóg að gera og við æfum að skrifa stafi, leira þá og setja þá saman í orð. Þetta er heilmikil vinna og öllum þykir gaman.








