Nemendum boðið út að borða

23.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vetur konungur kveður okkur blíðlega með rjómalogni og sólskini. Víða mátti sjá nemendur léttklædda á lóð skólans í dag og margir kennarar nýttu sér góðviðrið til útikennslu. 


Heimilisfræðival á unglingastigi gerði sér lítið fyrir og dreif sig út að borða þær kræsingar sem matreiddar höfðu verið, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.