Náttúrugripasafnið í Bolungarvík

02.06.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fórum við í heimsókn í Náttúrugripasafnið í Bolungarvík. Hulda Albertsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir tóku á móti hópnum og lögðu verkefni fyrir krakkana, sem þeir leystu með stakri prýði. Verkefnið var nokkurs konar ratleikur um safnið og þurfti að leita sér upplýsinga til að svara spurningum. Eftir það var nestispása og svo var haldið heim á leið, þar sem ekki viðraði vel til útivistar, en upphaflega ætluðum við að ganga um fjöruna fyrir heimför.


Það voru kátir krakkar sem komu heim frá Náttúrugripasafninu og voru þeir mjög áhugasamir og til mikillar fyrirmyndar.


Hér má sjá myndir frá ferðinni.