Nám við hæfi hvers og eins.

10.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú eru tvær vikur síðan við breyttum vinnulaginu hjá okkur þannig að minnst tíu tímar á viku fara í valvinnu. Við getum ekki merkt annað en allir séu ánægðir með fyrirkomulagið, margir hafa tekið sig verulega á í vinnu en aðrir eru ennþá að átta sig á því hvernig hagkvæmast er að haga verkunum og tíminn er rokinn frá þeim áður en þeir vita af. Við lítum á þetta sem byrjunarörðugleika og horfum bjartsýn til áframhaldsins.