Nafnorð, ummál o.fl.

05.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa vikuna höfum við verið að vinna með nafnorð í íslensku og mælingar og flatarmál í stærðfræðinni. Í samfélagsfræðinni eru allir farnir í skipasmíði og á næstunni leggjumst við í víking annað hvort austur um Evrópu eða til Skotlands og eyjanna þar um kring. Náttúrufræðitímarnir hafa nokkuð farið í að skoða köngulær og önnur smádýr.