Nafnorð
12.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa vikuna höfum við verið að vinna með nafnorð, sérnöfn, samnöfn og fallbeygingu. Það vefst ekkert fyrir hvort Valur og Sóley eru sérnöfn eða samnöfn, en þegar fara á að finna samnöfn vandast málið.
Í næstu viku kemur hingað fólk frá menntamálaráðuneytinu til að gera úttekt á skólanum. Það verður rætt við ýmsa aðila og m. a. nemendur. Tveir nemendur frá okkur verða valdir til að taka þátt í umræðum um skólann. Margir buðu sig fram í þetta verkefni en færri fá en vilja.








