Myndataka og undirbúningur fyrir árshátíð
01.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á mánudaginn í næstu viku verður bekkjamyndataka. Nánari upplýsingar um það er að finna á vikuáætlun og á miða sem börnin komu með heim í vikunni.
Nú er undirbúningur fyrir árshátíð alveg að komast á fullt skrið og allir orðnir voðalega spenntir enda rík ástæða til. Þema árshátíðarinnar þetta árið er Lífið er leikur og við í 1. bekk erum sko alveg sammála því.








