Mjög vel heppnuð fjallganga 6.bekkjar í blíðskaparviðri

29.08.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Árleg fjallganga árgangsins var farin í morgun, í sól og blíðu.


 


Gengið var frá gönguskíðaskálanum upp að lokastaur Sandfells lyftu og þaðan að upptökum Miðfells lyftu.


 


Síðan lá leiðin niður grænar og grónar skíðabrekkur okkar Ísfirðinga að skíðaskálanum.


 


Því næst gengum við göngustíginn niður í Tungudal þar sem krakkarnir léku sér og borðuðu hádegisnestið í blíðunni.


 


Að lokum gerðum við stutt stopp í Simsons garði og fórum í nokkra leiki.  


 


Frábær ferð í alla staði og krakkarnir í 6.bekk algjörlega til fyrirmyndar.


 


Ég get ekki sett myndir inn á heimasíðuna eins og er þannig að ég set þær inn á facebook síðu árgangsins