Mikið að gera
19.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hjá okkur var mikið að gera þessa viku. Við tókum þátt í Norræna skólahlaupinu og allir stóðu sig með prýði. Þá komu tónlistamenn frá Tónlist fyrir alla í heimsókn og það var mjög gaman. Við hlustuðum á söngva úr Töfraflautu Mozarts.








