Mennirnir sem þurftu að komast yfir brúna

05.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag lögðum við fyrir þraut í stærðfræði. Engum tókst að leysa hana í tímanum, kannski einhverjir fleiri vilji reyna.


 


Fjórir menn þurfa að komast yfir brú. Þeir byrja allir á sama enda brúarinnar. Það er nótt og myrkur og mennirnir hafa bara eitt vasaljós. Aðeins tveir menn geta gengið á brúnni í einu. Enginn, hvort sem er einn eða tveir, getur farið yfir brúna án vasaljóssins. Það þarf að ganga með vasaljósið yfir brúna, það er ekki hægt að kasta því eða sveifla í bandi eða annað slíkt. Hver maður gengur yfir brúna á sínum hraða en ef tveir labba saman verða þeir að fara á hraða þess sem fer hægar.


 


Arnar fer yfir brúna á 1 mínútu


Bragi fer yfir brúna á 2 mínútum


Davíð fer yfir brúna á 4 mínútum


Eyvindur fer yfir brúna á 10 mínútum


 


Hvernig komast allir mennirnir yfir brúna á 17 mínútum?


 


kv, Harpa