Maskadagsfjör
18.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Líf og fjör á maskadaginn.
Á mánudaginn var maskadagur og þá máttu allir koma í maskabúningum í skólann. Ýmsar furðuverur birtust á göngum skólans. Það var slegið upp maskadagsballi inni í sal. T veir stórir strákar sáu um að halda upp fjörinu, þeir spiluðu músík og settu alvöru diskóljós á. Það var mikið fjör í gangi, dansa og farið í limbó. Að því lokunu borðuðu krakkarnir bollur í nesti. Ýmislegt annað var brallað þennan dag og krakkarnir fóru kátir og hressir heim í lok skóladags. Tilbúnir fyrir maskaævintýri kvöldsins.








