Maskaball

11.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Maskadagur


Í dag mættu allskyns furðuverður í skólann og var gaman að sjá hve hugmyndarík krakkarnir eru í vali á grímubúningum.  Í nestistíma voru borðaðar rjómabollur og síðan skelltum við okkur á ball með vinum okkur í 5. bekk.  Það var svaka stuð á ballinu, unglingarnir í tækniráðinu héldu uppi fjörinu með því að spila góða músík,  blikkandi diskóljósum og síðast en ekki síst spúði reykvélin út reyk svo allt var fullt af dulúð á ballinu og passaði það vel við allar nornirnar, vampírurnar og aðrar undirheimaverur sem mættu á  ballið.