Markmið og tilgangur með skólaráði
26.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Með nýjum grunnskólalögum nr. 91/2008 sem tóku gildi 1. júlí 2008 kemur fram að við grunnskóla skal starfa skólaráð og það:
Er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.
Skal taka þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.
Skal fjalla um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
Skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
Fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.
Skólaráð fjallar ekki um önnur málefni viðkomandi skóla en þau sem talin eru upp hér að ofan, nema skólanefnd (menntaráð) feli eintökum skólaráðum ákveðið verkefni þessum til viðbótar. Skólaráð fjallar ekki um málefni
einstaklinga svo sem nemenda og kennara, heldur fylgist almennt með öryggi og aðbúnaði í skólanum og almennri velferð nemenda.
Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári.
|








