Margföldunarland
02.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Helga kennari er að læra um Byrjendalæsi ásamt fleiri kennurum í 1. - 4. bekk í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík. Kennari kemur reglulega frá Háskólanum á Akureyri til að leiðbeina kennurunum. Byrjendalæsi gengur út á það að nota góðar barnabækur (gæðatexta) í kennslunni þ.e. vinna með góða og merkingarbæra texta á margvíslegan hátt.
Þó við í 4. bekk séum búin að læra að lesa er hægt að nota þessa kennsluaðferð áfram t.d.til að auka lesskilning. Undanfarnar 2 vikur höfum við notaða söguna um Glókoll í íslenskukennslunni m.a. fundið lýsingarorð og nafnorð í sögunni, endursagt söguna, skoðað orð og orðtök sem við skiljum ekki, gert stafsetningaræfingu og margt fleira. Í dag rifjuðum við upp margföldunartöfluna í tengslum við söguna og hefur eitt hornið í skólastofunni nú breyst í margföldunarland þar sem hver margföldunartafla á sitt hús.








