Mánuður eftir af skólastarfinu

04.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það styttist óðum í skólalok þetta skólaárið, en síðasti kennsludagur er 3. júní. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á vorskipulagið og mun það birtast fljótlega hér á síðunni.


Við minnum á að skóladagatalið í heild sinni er að finna hér  ef fólk vill hafa það til hliðsjónar við skipulagningu sumarfrísins. Við megum ekki gleyma því að þó að lítið bóklegt nám fari fram hér í skólanum síðustu kennsludagana, að þá er heilmikið annað sem nemendur fá út úr þeim dögum.