Lokaspretturinn að hefjast

05.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Tíminn líður hratt og nú eru skyndilega aðeins örfáar vikur eftir af þessu skólaári. Aðeins eftir síðasti spretturinn fram að lokaprófum vetrarins. Reyndar er það svo að þegar öll vinna nemenda er metin til einkunnar, vega lokapróf sífellt minna í heildarútkomunni, aðalatriðið er að standa sig vel, jafnt og þétt allan veturinn. En auðvitað eru prófin líka mikilvæg, ekki skal dregið úr því.


Við erum nú búin að lesa bókina Mávahlátur, einhverjir nemendur eru að lesa síðustu blaðsíðurnar núna um helgina. Svo ætlum við að horfa á kvikmyndina í næstu viku og unnið verður býsna stórt verkefni um bókina og myndina. Nemendur eru einnig að ljúka lestrarverkefnum þessa dagana, þeim á að skila í síðasta lagi á þriðjudaginn, 9. apríl.


Í ensku erum við að byrja á nýjum kafla. Þetta nýja námsefni, Spotlight, fjallar að mörgu leyti um samfélagsleg mál, ekki síst 5. kafli bókarinnar sem heitir Different perspectives. Hann hefst á umfjöllun um Martin Luther King og Barack Obama og einnig munu nemendur kynna sér Nelson Mandela og skrifa um hann.