Lokadagar skólaársins.
24.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
29. maí – 5. júní.
Nú eru síðasta kennsluvikan að renna upp. Við munum reyna að vera mikið úti svo gott væri að foreldrar aðstoði börnin sín við að velja fatnað sem hæfir veðrinu hverju sinni.
Mánudagur 28. maí. Annar í hvítasunnu og frídagur.
Þriðjudagur 29. maí. Skógarferð, við ætlum að hjóla inn í Tunguskóg og vera þar við leik og störf. Mæting klukkan 8. Við hjólum frá skólanum inn í skóg. Krakkarnir sem búa inn í firði mega mæta á leikvöllinn inn í firði og hitta Árný og fara síðan þaðan og mæta okkur við Seljaland. Við hjólum síðan inn í Tunguskóg. Allir þurfa að hafa með sér morgunnesti í léttum bakpoka. Við ætlum að grilla pylsur í hádegismat og mötuneytið skaffar pylsur fyrir þá sem þar eru en þeir sem ekki eru í mötuneytinu þurfa að koma með pylsu og pylsubrauð fyrir sig. Við hjólum síðan heim upp úr hádegi og þeir sem búa inn í firði mega fara beint heim (vinsamlega látið mig vita ef þeir eiga að koma með út í bæ).
Miðvikudagur 30. maí. Leikjadagur; nemendur koma með léttan bakpoka og nesti eins og venjulega.
Fimmtudagur 31. maí. Vorverkadagur þar sem allir nemendur og starfsmenn skólans taka höndum saman og vinnum við að fegra bæinn okkar . Gott væri að nemendur mæti með hanska/vinnuvettlinga og plastdollu t.d. utan af majonesi eða skyri.
Það þarf að koma með nestið í léttum bakpoka.
Þennan dag er skólinn búinn kl. 12:00
Föstudagur 1. júní. Frágangur og heimsókn á Bæjarbókasafnið . Edda á Bæjabókarsafninu ætlar að taka á móti okkur og sýna okkur safnið. Þennan dag er sumarlestrarleikur Bæjarbókasafnsins að byrja og 3. bekkur verður vonandi duglegur að taka þátt í þeim leik.
Allir nemendur í GÍ geta fengið sitt fyrsta bókasafnsskírteini frítt ef þeir koma í fylgd með forráðamönnum sínum.
Ath. mötuneytið er lokað í dag og því þurfa allir að hafa tvöfalt nesti.
Mánudagur 4. júní. starfsdagur og frí hjá börnunum.
Þriðjudagur 5. júní. Skólaslit, afhending vitnisburðar kl. 10 í bekkjarstofu.
Heimavinnan er komin í sumarfrí en auðvita þurfa allir að lesa heima daglega og velja sér bækur heima eða á Bæjarbókasafninu. Kær kveðja og takk fyrir veturinn Helga








