Lög Foreldrafélags GÍ

28.01.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

1. gr.


Félagið heitir Foreldrafélag Grunnskólans á Ísafirði og er heimili þess á Ísafirði.


 


2. gr.


Félagar eru foreldrar og forráðamenn nemenda.


 


3. gr.


Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda skólans og styrkja    skólann í hvívetna.  Markmiði sínu hyggst félagið m.a. ná með því að:



  • Auka kynni milli foreldra, barna og kennara í skólanum.

  • Hafa áhrif á umhverfi og aðbúnað í skólanum.

  • Stuðla að umræðu um uppeldismál.

  • Gangast fyrir ýmsum námskeiðum og þjónustu sem ekki er boðið upp á innan skólastarfsins.

  • Vera vettvangur athugana á venjum barna í skólaumhverfinu.


4. gr.


Stjórn félagsins skipa 5 foreldrar.  5 aðalmenn eru kosnir til tveggja ára í    senn, formaður sérstaklega og 2 meðstjórnendur annað hvert ár og 2    varamenn til eins árs.  Á aðalfundi eru jafnframt kosnir 2    endurskoðendur til 1 árs.  Æskilegt er að fulltrúar í stjórn eigi börn á    mismunandi aldursstigum skólans, yngsta stigi, miðstigi og efsta    stigi.  Stjórnin getur skipað nefndir til ýmissa starfa.  Stjórnin skal    koma saman a.m.k. mánaðarlega á tímabilinu ágúst - júní.  Kennarar    skólans hafa rétt á tveimur áheyrnarfulltrúum til setu á stjórnarfundum,    með málfrelsi og tillögurétti.


 


5. gr.


Aðafund skal halda í byrjun skólaárs ár hvert og skal hann boðaður með minnst    viku fyrirvara (en þriggja daga fyrirvara með dreifibréfi).


 


6. gr.


Félagsstjórn skal ekki sinna klögumálum eða hafa afskipti af vandamálum sem upp    kunna að koma milli einstakra foreldra eða nemenda og starfsmanna    skólans.


 


7. gr.


Samþykktum þessum má aðeins breyta á aðalfundi.  Fundur er löglegur sé löglega til hans boðað.


 


8. gr.


Verði félagið leyst upp skulu eignir þess renna til skólans.



9. gr.


Samþykktir þessar öðlast þegar gildi.


 


Samþykktir Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði með breytingum samþykktar á aðalfundi 28. 10. 1993 og 09. 10.