Ljósmyndarar framtíðarinnar
03.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í hringekju er 2. bekk skipt í tvo hópa Appelsínur og Mangó (eru í myndmennt). Appelsínurnar voru í sínum næst síðasta tíma í upplýsingatækni og í dag fóru krakkarnir í hópum að taka ljósmyndir. Þau áttu að taka myndir af hvert öðru og að taka myndir af formum og litum. Mikil gleði var hjá þeim að skottast um skólann og skemmtilegt að sjá hversu ólíkar myndirnar voru hjá þeim. Hér eru nokkur sýnishorn frá hverjum hóp fyrir sig. Þetta eru klárlega ljósmynda- snillingar








