Ljóð nemenda lesin upp á Degi íslenskrar tungu

09.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Jón smiður.


Jón fór niður og hann var smiður.


Hann vann og vann


en ekkert kann.


Því þegar hann var að læra


ungur í skóla


lærið hann ekki neitt


því hann var að slóra.


Björn Dagur


 


Daglegt líf.


Hundurinn skítur.


Snjórinn er hvítur.


Jólin verða rauð og ég borða brauð.


 


Kassinn datt á gólfið.


Ég brjálaðist,


 rauk upp úr stólnum til að taka til.


Hjörtur Ísak.


 


Kvöld.


Sprækir strákar fara að sofa þegar mamma segir.


Mamma segir: „ Farðu að sofa", en ég segi „nei".


Pabbi segir: „ Farðu að sofa", og ég segi „já".


„Já, ég fer að sofa ef þú segir mér sögu".


Pabbi segir mér sögu um mann sem var að lesa meðan hann ók


og hann ók á ljósastaur.


Hann var ekki tryggður, því hann átti ekki aur


þegar hann ók á ljósastaur.


Og ég fer að sofa.


Ólöf Dagmar.


 


Minning mín.


Ég man þegar ég svaf í faðminum á þér. 


Hlýleg tilfinning, þú varst hjá mér.


Bara ef ég gæti séð þig einu sinni enn.


Þá myndi draumur minn rætast.


Ég mun ávallt geyma þig í hjarta mér.


Eitt sem ég veit, ég mun aldrei gleyma þér.


En það er eitt sem þú sérð.


Hey, manstu eftir mér? Þetta er ég.


Ég sé þig, þú sérð mig ekki.


Þú veist ekki að þetta er ég.


Þú manst ekki eftir mér – tárin renna niður........


Ég loka augunum og vakna ekki aftur.


Nú er allur kraftur farinn.


Mér leið eins og ég væri barin.


Nú er ég farin til Guðs.


Birta Dögg Guðnadóttir.


 


Ofurhetjan mín.


Batman er ofurhetjan mín,


ofurhetja sem bjargar öllu.


Bjargar mér stundum líka.


Batman er uppáhalds ofurhetjan mín,


 enda er hann hundurinn minn.


            Eva Rún


Litir.


Gulur fyrir sólina.


Rauður fyrir epli.


Grænn fyrir grasið.


Blár fyrir sjóinn.


Svartur fyrir myrkrið


Og hvítur fyrir góða snjóinn.


Kolfinna Rós.


 


Ostur.


Góður ostur er veislukostur.


Þegar ég borðaði fyrst ost


eldingu í mig lost.


Þetta var svo gott, fínt skorið og flott.


Vel fram borið á bakka.


Ég lét í mér hlakka.


Hákon Ernir.


 


Býflugan, fuglinn, áin og fossinn.


Býflugan dansar, fuglinn dansar,


áin dansar, fossinn dansar.


 


Býflugan syngur, fuglinn syngur,


áin syngur, fossinn syngur.


 


Býflugan fer á milli staða,


fuglinn fer á milli staða,


áin fer á milli staða,


fossinn fer á milli staða.


 


Býflugan lætur í sér heyra,


fuglinn lætur í sér heyra,


áin lætur í sér heyra,


 fossinn lætur í sér heyra.


 


Býflugan dansar, fuglinn syngur,


Áin fer á milli staða,


Fossinn lætur í heyra í sér.


            Guðný Birna.


 


Kría.


Hún flýgur yfir allan heiminn.


Jafnvel yfir allan geiminn.


Hún stoppar ekki á leiðinni


ekki einu sinni á heiðinni.


Hún verpir litlu eggjunum


með pínulitlu leggjunum.


Hreinn Róbert.


 


Sumarið


Þú fórst frá mér, án þess að kveðja mig,


 að hausti til.


Ég sakna þín og vonandi saknar þú mín.


Ég man þegar ég sá þig fyrst, okkar fyrstu kynni.


Þegar ég labbað með þér meðfram ströndinni.


Þegar sólin skein og fuglarnir sungu,


þegar við lágum í grasinu og horfðum til himins.


Nú horfi ég á sjóinn, fuglana, sólina, grasið og ströndina.


Þetta var frábært sumar.


Ég mun aldrei gleyma þér .


Þessar minningar mun ég ávallt geyma.


            Guðný Birna.


 


Þú


Manstu þegar þú varst í grunnskóla, en þóttist vera í háskóla?


Manstu þegar þú stóðst á snjóskafli, en þóttist vera á Grænlandi?


Manstu þegar þú hélst á litlu priki, en þóttist halda á stóru striki?


Manstu þegar þú sast á stól, en þóttist standa á hól?


Já. Manstu eftir ævinni?


Manstu eftir mér?


            Elísabet


 


Liverpool.


Þeir gefast aldrei upp þó þeir séu undir. Þeir gefast aldrei upp.


Downing Adam og Gerrard leggja mörkin upp.


Reina, Skertel, Agger. Carragher, Enrique og Kelly verja markið.


Suarez og Carroll skora mörkin. Þeir hafa viljann, þolið og hæfileikana til að vinna titla,


þeir ætla sér að vinna titla á þessu ári.


Kenny Dalglish er kominn aftur, gamla Liverpool goðsögnin.


Hann er búinn að breyta Liverpool.


Þegar hann kom var allt í rugli en hann breytti öllu og þeir eru komnir aftur á sigurbraut.


Sigurður Arnar


 


Sleða voffi.


Um nóttina læðist, um stíginn hann færist.


Flottur hundur sem dregur sleða


Fullan af óskum, fullan af sorgum.


Þeytist niður hæðir á allra manna færi.


Ég kveiki á eldi, hann bítur í feldinn,


dreymir sig í geiminn, í þessum stóra heimi,


sleikir trýnið og elskar lífið.


            Natalía Kaja.


 


Hundurinn minn Tryggur.


Hundurinn minn er góður,


Stundum alveg óður.


Hann er líka fróður en alltof góður!


Hann er algert undur enda er hann hundur.


            Pétur Tryggvi.


 


Frækinn strákur.


Frækinn strákur fór á sjó


Til að fiska í soðið


Þegar færið upp hann dró


Kom ekkert nema roðið.


Sá frækni réri aftur heim


Því ekki nennti hann þessu,


Næsta dag réri sá frækni í sitt seinna sinn


síðasti róður þessi


ekki réri frækni aftur heim í veðri þessu.


                        Elías Ari.