Ljóð

05.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í næstu viku er komið að því að læra þriðja ljóð vetrarins, Ég bið að heilsa eftir Jónas Hallgrímsson. Nemendur skrifuðu það upp í ljóðabækurnar sínar í dag og tóku þær heim. Einhverjir eiga líka eftir að læra ljóðið Á íslensku  og væri ekki úr vegi að drífa í því á næstu vikum.


Eins og fram kemur á kennsluáætlun, að ef nemendur læra tilsett ljóð í vetur, þá fá þeir 10 í ljóðaeinkunn. Ef ekki, þá þurfa þeir að þreyta ljóðapróf í vor, þannig að það er til mikils að vinna að læra ljóðin.