Litlu jól og fleira skemmtilegt
14.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
17. desember – 20. desember
Þá er komið að síðustu skóladögunum fyrir jólafríið.
Á mánudag og þriðjudag eru venjulegir skóladagar og þá ætlum við
að halda áfram að rifja upp og æfa okkur í lestrarverkefnum og
samlagningu auk þess sem við vinnum ýmislegt sem tengist jólahátíðinni.
Einnig förum við í sund og heimilisfræði.
Miðvikudaginn 19.desember er skreytingardagur og mæta nemendur eins og venjulega með skólatöskuna en skóla lýkur kl: 12:00 þann dag. Gott væri að nemendur hefðu með sér heftara og hefti í skólann þar sem við ætlum að búa til jólakeðjur.
Fimmtudaginn 20. desember eru svo Litlu jólin og mæta þá nemendur spariklæddir kl: 9.00. Nemendur koma þá með smákökur og gos eða fernudrykk með sér í nesti. Við ætlum að hafa notalega stund í stofunni okkar og fara á jólaball. Skóla lýkur svo kl. 12:00 og þar með hefst jólafríið.
Sú hefð hefur skapast hér við skólann að börnin skiptast á gjöfum á Litlu jólunum. Börnin eiga að skila gjöfunum til umsjónarkennara eigi síðar en miðvikudaginn 19. desember. Gjöfin á að vera innpökkuð og henta báðum kynjum. Hámarksverð er 500 kr.
Strætisvagnar fara frá skólanum kl: 12.05 miðvikudaginn 19. og fimmtudaginn 20. desember.
Kennsla hefst aftur föstudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og þökkum samvinnuna á árinu sem er að líða.
Inga Sigga og Jón Heimir








