Litla Act alone
09.05.2022 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Litla Act alone er haldin hátíðleg fyrir æsku Vestfjarða þessa dagana. Í morgun var röðin komin að G.Í. og fengu öll stig sína sýningu í Hömrum. Yngsta stigið fékk sýninguna Sól á Vestfjörðum en eldri nemendum var boðið upp á Lalla og töframanninn.
Sýningarnar voru mjög vel heppnaðar og nemendur skemmtu sér frábærlega.








