Litahegðun
25.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hér koma smá upplýsingar um litahegðunina sem við ræddum á haustfundinum í morgun.
Af hverju er gott að setja lit á hegðun?
- Hægt er að ræða um neikvæða hegðun án þess að vera persónulegur.
- Auðveldar nemendum að greina sína eigin hegðun og annarra.
- Einfalt og auðskilið.
- Orð sett á æskilega hegðun, allir vita hvernig hún er og geta stefnt að henni.
Rauð hegðun
-ógnandi-
- Vill ráða.
- Æstur.
- Árásargjarn, lemur, sparkar, hrækir, bítur, uppnefnir og hræðir...
- Grípur frammí, hrópar -hlustar ekki.
- Reiðilegt augnaráð.
- Ljótt orðbragð
Gul hegðun
Hegðun er mjög truflandi
- Hvað er best fyrir mig, vill setja reglurnar sjálfur.
- Er óöruggur með sig.
- Stríðir og hæðist að öðrum, talar illa um aðra, slúðrar.
- Truflar (kennslu)
- Leggur í einelti.
- Talar niður til fólks.
- Svíkur loforð sín.
- Ljótt orðbragð.
Grá hegðun
Niðurdreginn, dreur sig í hlé
- Finnst hann ómögulegur og veit ekki hvað hann vill.
- Lætur aðra ráða yfir sér og vill að öllum líki við sig.
- Tekur þátt í að leggja aðra í einelti, hjálpar ekki vinum sínum.
- Fer í burtu ef eitthvað kemur uppá.
- Talar lágt, talar illa um sjálfan sig, horfir niður þegar hann talar.
Græn hegðun
Er sáttur við sjálfan sig og þorir að vera hann sjálfur
- Tekur tillit til annarra og finnst hann eiga rétt á að vera öðruvísi en aðrir.
- Veit að hann er góður í ýmsu og minna góður í öðru.
- Þorir að segja meiningu sína og sýna tilfinningar.
- Skiptir sér af og hjálpar þegar hann sér aðra lagða í einelti.
- Reynir að vera heiðarlegur og standa við loforð.
- Þorir að viðurkenna mistök sín og biðja aðra um hjálp.
- Hlustar á aðra og sýnir virðingu.
- Reynir að leysa málin og semja.








