Lífsleikni í samstarfi við foreldra

25.04.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Eins og áður hefur komið fram hafa foreldrar verið að koma í heimsókn í lífsleikni og kynna fyrirtæki sín eða atvinnu. S.l miðvikudag kom Auður Björnsdóttir í heimsókn og kynnti hundaþjálfun og Martha Ernsdóttir var með jóga.
Í dag fáum við heimsókn frá bændum og eru það Guðrún Íris Hreinsdóttir frá Ketilseyri og Sighvatur Þórarinsson frá Höfða í Dýrafirði sem ætla að kynna sveitastörf og helmingur hópsins hittir námsráðgjafa.


Hafa þessar kynningar tekist einstaklega vel og viljum við þakka öllum sem hafa heimsótt okkur eða tekið á móti okkur á vinnustað sínum kærlega fyrir aðstoðina.


kveðja Guðríður og Kristín