Lífsleikni - haust
11.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Lífsleikni
Kennarar: Auður Yngvadóttir og Helga S. Snorradóttir
Kennslustundir: 1 kennslustund á viku
Námsefni/aðferðir: Ertu? Vinnubók í lífsleikni, Eineltishringurinn, bekkjarfundir, uppbyggingarstefnan, árshátíð, Stóra upplestrarkeppnin, reyklaus bekkur, skólabúðir að Reykjum, fjallgöngur.
Kennslutilhögun: Lífsleiknin er kennd einu sinni í viku að jafnaði allan veturinn. Kennsluaðferðir; einstaklingsvinna, umræður, hópavinna og bekkjarfundir.
Nemendur fara í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði þar sem reynir mikið á mannleg samskipti og tillitssemi.
Markmið: -Að þjálfa nemendur í mannlegum samskiptum og tillitssemi.
-Að nemendur geri sér grein fyrir áhættu samfara neyslu vímuefna og hafi jákvætt viðhorf til heilbrigðs lífernis.
-Að nemendur vinni gegn einelti.
-Að nemendur átti sig á andlegum, tilfinningalegum og félagslegum breytingum sem verða í lífi einstaklings við það að breytast úr barni í ungling.
-Að nemendur geti tjáð sig og fært rök fyrir hugsunum, skoðunum, tilfinningum og væntingum.
-Að nemendur þjálfist í að koma fram fyrir hóp.
-Að nemendur vinni samkvæmt uppbyggingarstefnu.
Námsmat: Vinnueinkunn
Vika |
Viðfangsefni |
Námsefni |
ág. – sept. |
Skólabúðir, fjallganga, bekkjarfundir |
|
okt. |
Bekkjarfundir, hlutverkin |
Bekkjarsáttmáli, mitt og þitt hlutverk, hegðunarbíllinn |
nóv. |
Bekkjarfundir, Olweus |
Ertu? Vinnubók í lífsleikni |
des. |
Bekkjarfundir, jólaundirbúningur |
|
jan. |
Undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina, bekkjarfundir |
Efni frá kennurum |








