Lífið í 1. bekk
27.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hjúkrunarfræðingur kom í heimsókn og fræddi okkur um mikilvægi góðrar næringar og svefn. Öll börn þurfa minnst 10 tíma svefn til að geta mætt kát og hress í skólann.
Í næstu viku byrjar innileikfimin og þá verður að koma með íþróttaföt, tátiljur og handklæði.
Á miðvikudag
ætlum við að halda upp á „Göngum í skólann" daginn, með því að fara í skemmtigöngu
sem endar á torginu. Gaman
væri að allir í 1. bekk myndu klæðast einhverju rauðu, t.d. húfu, trefli og
vettlingum.








