Líf og fjör á maskadegi

03.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun mættu margir í grímubúningum í skólann í tilefni maskadagsins. Sjá mátti ýmsar persónur, mennskar sem ómennskar. Slegið var upp þremur grímuböllum fyrir 1. - 7. bekk og dönsuðu allir við taktfasta tónlistina. 
Sjá má fjölmargar myndir frá maskadeginum  hér  inni á myndasafni skólans.


Í kvöld er svo náttfatanótt hjá unglingunum í félagsmiðstöðinni.