Leynivinaleikur

26.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú ætlum við að fara af stað með leynivinaleik í hvorum bekk fyrir sig. Í dag drógu krakkarnir út sinn leynivin og ætla að gleðja þann aðila á morgun og fimmtudaginn. Við leggjum áherslu á sem minnstan tilkostnað, enda margt hægt að gera án þess að kaupa gjafir. Það verður virkilega gaman að sjá hvað krakkarnir verða hugmyndaríkir og vonandi þjappar þetta hópnum betur saman.