Lestrarveisla
28.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var lestrarveisla hjá okkur í 4. bekk.
Nemendur lásu upp ljóð, fóru með þulur og sungu fyrir áheyrendur. Við erum mjög stolt af því hvað nemendur stóðu sig vel.
Við buðum foreldrum 4. bekkjar og nemendum úr 3. bekk í heimsókn. Mætingin var mjög góð og áhorfendahópurinn mjög flottur.
Eftir upplesturinn gæddum við okkur á veitingum sem foreldrar komu með. Við þökkum fyrir góðar veitingar.








