Lestrarátak, rithöfundakynning á bókasafni og lifandi tónlist í nestinu
21.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir hafa verið duglegir að lesa heima síðustu tvær vikur.
Á fimmtudaginn fengu þau langþráðan kappakstursbíl á bílabrautina en þá höfðu þau öll lesið heima, skráð á miðann og munað eftir honum, 28 nemendur ! Við vorum öll mjög ánægð með árangurinn og gáfum okkur stórt klapp !!!!
Annars hafa þau flest lesið heima á hverjum degi síðan við byrjuðum í átakinu og vonandi skilar þetta árangri í hraðlestrinum en í vikunni 24.-28. verða hraðlestrarpróf.
Á fimmtudaginn fórum við á rithöfundakynningu á skólabókasafninu, Rannveig bókasafnsfræðingur kynnti fyrir nemendum höfundinn Sigrúnu Eldjárn og fjölmargar bækur hennar. Krakkarnir voru stilltir og prúðir og hlustuðu á af athygli. Vonanadi að einhverjir eigi eftir að kynna sér verk hennar af eigin raun.
Við höfum fengið að njóta tónlistargáfu nemenda í nestinu undanfarið, mjög skemmtilegt








