Lesskilningur

29.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessar síðustu vikur skólaársins munum við leggja áherslu á lesskilning. Nemendur hafa nú lokið við Gunnlaugs sögu ormstungu og gert henni skil, þar sem þeir unnu í hópum. Nú munu krakkarnir vinna í leshópum, þar sem þeir lesa saman ákveðnar bækur og vinna sameiginlega verkefni úr þeim. Þetta fyrirkomulag leggst vel í hópinn og virkilega gaman að heyra þegar krakkarnir ræða saman um innihald textans og komast sameiginlega að niðurstöðu.


Við minnum líka á nauðsyn þess að lesa heima daglega, en góð þjálfun í lestri er auðvitað grundvöllurinn að góðum lesskilningi.