Leiksýning

26.04.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Nk mánudag er nemendur 8.-10. bekkjar boðið uppá leiksýninguna Hvað ef?


Sýningin verður í Edinborg.


 


Hvað Ef?   skemmtifræðsla er uppistand fyrir unglinga, foreldra og kennara um mörg þau málefni og freistingar sem ungt fólk stendur frammi fyrir um það leyti sem það breytist úr börnum í fullorðið fólk. Hvað Ef? fjallar um viðkvæm mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál á skemmtilegan og nýstárlegan hátt.


 


Flytjendur eru Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Ævar Þór Benediktsson. Leikstjóri Gunnar Sigurðsson.