Leikjadagur 30. maí
28.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Föstudaginn 30. maí er leikjadagur í Grunnskólanum á Ísafirði. Við verðum með stöðvavinnu, leiki og uppákomur við íþróttahúsið Torfnesi, Menntaskólann og í Jónsgarði.
Nemendur mæta í skólann með nesti og klæddir eftir veðri. Skólataska er óþörf.
08:00 – Nemendur mæta í skólann.
08:20 – Stöðvar og leikir hefjast.
09:10 – Nesti
10:45 – Gengið frá stöðvum.
11:00 – Nemendur fara í frístund eftir skipulagi.
12:00 – Matur í mötuneyti/frímínútur
13:40 – Nemendur mæta í skólastofu.
14:00 – Farið heim/dægradvöl.
Kveðja Jón Heimir og Sigþrúður.








