Leikjadagur

29.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag vorum við á leikjadegi í og við Torfnes.  Morguninn leið hratt í brakandi blíðu.  Stöðvarnar sem krakkarnir fóru á voru:  Trampólín, bandý, ratleikur, badminton og boðhlaup.  Allir tóku þátt á sínum forsendum og krakkarnir voru glaðir og kátir.


 


Á morgun förum við í hjólaferð út í Hnífsdal og er mæting við Sundhöllina kl. 8:30 á hjóli með hjálm og nesti.  Hnífsdælingar hitta okkur kl. 9:00 við "Steininn" á Hnífsdalsvegi.  Vonum að við verðum jafn heppin með veðrið á morgun.


 


Wink SólarkveðjaEmbarassed