Leikið úti í snjónum
05.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Eitt af verkefnunum sem tengjast Comeniusarvinnunni er að búa til myndbandsauglýsingu sem á að sýna að öll börn séu eins, hvar í heiminum sem þau búa. Hvert þátttökuland tekur upp stutt myndband af börnum að leik og síðan verður þessum myndböndum skeytt saman og bætt við tónlist og texta.
Við notuðum tækifærið þegar snjórinn var kominn og brugðum okkur út á Silfurtorg til að leika okkur í snjónum. Kennararnir tóku ærslin upp á myndband sem verður lagt í þetta púkk. Blaðamaður BB varð eitthvað var við þetta og smellti þessari skemmtilegu mynd af krökkunum.








