Kynningarglærur vegna myglu

16.04.2019 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þann 25. mars s.l. var haldinn kynningarfundur fyrir starfsfólk og foreldra um niðurstöður úr sýnatöku úr stofum í austurálmu Grunnskólans á Ísafirði. Eins og kynnt hefur verið þá innihéldu sýni af báðum hæðum álmunnar myglu og ljóst að fara þarf í umfangsmiklar framkvæmdir á húsnæðinu. Á fundinum fór Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í þessum málefnum hjá verkfræðistofunni Eflu, yfir málið með starfsfólki og foreldrum.


Glærur frá kynningunni er hægt að nálgast  hér.