Kynningarfundur
11.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Miðvikudaginn 16. október n.k. kl. 18:00 verður Jón Sigfússon frá Rannsóknum og greiningu með kynningu á niðurstöðum um hagi og líðan nemenda í Ísafjarðarbæ 2013. Könnunin var framkvæmd í febrúar og eiga niðurstöðurnar við nemendur í núverandi 6.-10. bekk. Jón mun einnig koma inn á þær breytingar sem verða hjá nemendum við flutning á næsta skólastig en þar eru athyglisverðar niðurstöður sem snúa að foreldrum, máttur þeirra er mikill í allri forvarnavinnu.
Þá mun Esther Ósk Arnórsdóttir forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar kynna starfið þar lítilega og varpa ljósi á skuggahliðar samskipta barna og ungmenna á internetinu.








