Kynning á vöruhugmyndum og úrslit

08.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir í 8.bekk kynntu í morgun vöruhugmyndir sínar og viðskiptaáætlarnir fyrir dómnefnd. Hana skipuðu Daníel Jakobsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Ómar Már Jónsson sveitarstjóri í Súðavík, Ásgerður Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Borea Adventure, Arna Lára Jónsdóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Ísafirði og Matthildur Jónu- og Helgadóttir framkvæmdastjóri Snerpu. Krakkarnir stóðu sig svakalega vel og töluðu dómararnir sérstaklega um það hversu öruggir þeir voru og faglegir þegar þeir kynntu hugmyndir sínar. Það reyndist dómurunum erfitt að velja einn hóp úr en svo fór að fyrirtækið Kippan Ehf. í eigu Sigurðar Arnars, Elíasar Ara, Péturs Tryggva, Jakobs og Dariusz vann. Hugmyndinn þeirra var lyklakippa með mynd af gamla sjúkrahúsinu á og nýjustu fréttir herma að þessir framtakssömu drengir ætla að hefja framleiðslu sem allra fyrst.