Kynning á valfögum
18.04.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag kom deildarstjóri unglingastigs, Halla Magnadóttir, í heimsókn til 7. bekkjar. Tilgangur hennar var að kynna fyrir nemendum fyrirkomulag næsta skólaárs, sérstaklega hvað varðar valfögin. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og duglegir að spyrja þegar eitthvað var óljóst. Í byrjun næsta mánaðar verða þeir sendir heim með bækling þar sem þau valfög verða kynnt sem verða í boði fyrir verðandi 8. bekkinga. Eiga krakkarnir svo að skila honum aftur til okkar þegar þeir hafa valið sér fög. Halla mun senda foreldrum póst með nánari upplýsingum um þetta.








