Kynning á Fab Lab
05.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag kom Albertína Elíasdóttir, starfsmaður Fab Lab á Ísafirði, til okkar og kynnti þessa stafrænu smiðju fyrir okkur þar sem möguleikarnir virðast vera endalausir. Næst á dagskrá er að koma krökkunum í hópa og hefja hugmyndavinnuna. Að henni lokinni verða allir hóparnir komnir með hugmynd að vöru sem þeir ætla að þróa.








