Kynfræðsla

04.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hjúkrunarfræðingur skólans heldur nú fyrirlestra um kynfræðslu fyrir nemendur 9. bekkjar og tekur þriðjung árgangsins í einu í lífsleiknitímum á mánudögum. Þeir sem ekki eru í kynfræðslu eru að vinna með Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna á meðan. 


Í síðustu viku var líka sýnd í skólanum myndin Fáðu já, sem nokkuð hefur verið fjallað um í fjölmiðlum og er ætlað að skýra mörkin milli kynlífs og ofbeldis.


Í framhaldi af fyrirlestrum hjúkrunarfræðingsins ætlum við að taka fyrir verkefni í kynjafræði.