Kuggur í heimsókn í 4. bekk
11.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa dagana erum við að vinna með bækurnar um Kugg eftir Sigrúnu Eldjárn í byrjendalæsinu. Kuggur er venjulegur drengur sem á óvenjulegar vinkonur, þær Málfríði og mömmu hennar. Þær mæðgur koma sífellt á óvart með skemmtilegum uppátækjum og óvenjulegum hugmyndum a.m.k.ef miðað er við aldur þeirra. Við lesum um uppátæki þeirra og í leiðinni notum við textann í allskonar verkefnavinnu t.d. til að auka orðaforðann, læra málfræði og segja frá.








