Keyrum heima að Hóli...

29.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Okkur var boðið í sveitina að Hóli í Önundarfirði af foreldrum Karenar Drífu og fengum við frábærar móttökur eins og myndirnar segja til um.


 


Við fengum að sjá kýrnar mjólkaðar í „mjólkurþjóninum“ , kálfana drekka úr pela-fötunni, heimalninginn drekka úr pela, kindurnar, lömbin og hænurnar. Ein kindin var að byrja að bera en gátum við ekki beðið eftir lambinu.


 


 Kýrnar fengu að fara út úr fjósinu í fyrsta sinn í vor og „slettu sko ærlega úr klaufunum“  það var mikil upplifun. Takk kærlega fyrir frábærar móttökur Jonni og UnaSmile


 


Enduðum á að koma við í Holts-fjöru og að sjálfsögðu er maður léttklæddur á ströndinni, er það ekki?


 


En þessi ferð hefði ekki verið möguleg nema að þið foreldrar tókuð þátt í rútkostnaði, takk fyrir þaðLaughing